Spjallbekki er að finna víða um heim og er ætlað að hvetja til félagslegra samskipta og draga úr einmanaleika. Spjallbekkir hafa nú kjölfar Viku einamnaleikans 2025 verið settir upp á þó nokkrum stöðum. (sjá hér að neðan)
Þeir eru merktir, til að gefa til kynna að sá sem situr þar er opinn fyrir samtali. Spjallbekkir skapa þannig vinalegt rými fyrir ókunnuga til að tengjast. Markmið þessara bekkja er að ýta undir samfélagskennd og draga úr einmanaleika og félagslegri einangrun með því að hvetja til lauslegra samræðna.
Spjallbekkir eru hvatning um að nýta alla bekki í gott spjall.
Hafðu samband við okkur á vikaeinmanaleikans@kvenfelag.is ef þú vilt setja upp spjallbekk í þínu bæjarfélagi.
Hvernig þeir virka:
Ávinningur:
Smelltu hér til að vista niður pdf skjali, til að nota sem merkingu á þínum Spjallbekk. Þú getur svo plastað það eða sett í plastumslag og fest á bekk í þínu nágrenni.
Spjallbekkur í Reykjavík
Reykjavíkurborg og Vika einmanaleikans voru í samstarfi við að setja upp appelsínugulan Spjallbekk í Laugardalnum. Hann er staðsettur við innganginn við Grasagarðinn.
Steinunn Ása Þorvaldsdóttir, starfsmaður á mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar var viðstödd þegar spjallbekknum var komið fyrir 7. október 2025.
Hér má horfa á frétta innslag frá Rúv um appelsínugula Spjallbekkinn, Haukur Holm fréttamaður ræddi við Steinunni Ásu og Hörpu Þorsteinsdóttur, verkefnastjóra lýðheilsu hjá Reykjavíkurborg
Spjallbekkur í Grindavík
Kvenfélag Grindavíkur afhenti Grindavíkurbæ Spjallbekk í tilefni af Viku einmanaleikans. Afhendingin fór fram á viðburði kvenfélagsins 8. október 2025 í menningarmiðstöðinni Kvikunni, sem er táknrænt fyrir þann tilgang sem bekknum er ætlað að þjóna – að ræða saman og efla tengsl og byggja upp samfélagskennd.
Sjá nánar hér.
Sjá frétt á vef Vikurfrétta í desember 2025. Spjallbekkurinn er þétt setinn í Kvikunni í Grindavík
Það er Málmsteypan Hella sem framleiddi þennan bekk og merkti.
Spjallbekkur í Mosfellsbæ
Mosfellsbær stökk á hugmyndina um appelsínugulan Spjallbekk og voru snögg að græja bekk. Hann var vígður 9. október 2025 og stendur við Bjarkarholt, nálægt Hlín blómabúð.
Spjallbekknum er ætlað að efla tengsl milli fólks, draga úr einmanaleika og styrkja samfélagsandann í bænum.
Spjallbekkur í Hafnarfirði
Hafnarfjarðarbær lét útbúa appelsínugulan Spjallbekk í tilefni Viku einmanaleikans. Spjallbekkurinn í Hafnarfirði er staðsettur við Fríkirkjuna í Hafnarfirði og var vígður 13. október 2025.
Spjallbekkur á Selfossi
Kvenfélag Selfoss lét útbúa Spjallbekk í nóvember 2025 og gaf bænum sínum.
Þær hvetja alla til að gefa sér tíma til að setjast niður og spjalla um lífið og tilveruna og gefa sér tíma til að kynnast lífi annarra í samfélaginu.
Bekkurinn er núna fyrir utan Selið fram í desember en svo verður hann formlega afhentur og færður í Tryggvagarð.
Spjallbekkur í Reykjanesbæ
Spjallbekkur á Strandgötu á Skagaströnd
Í febrúar 2026 var settur „Spjallbekkur“ við vinsæla gönguleið fyrir Víkina.
Spjallbekkjum er ætlað að hvetja til félagslegra samskipta og skapa tækifæri fyrir fólk til að setjast niður og eiga samtal við aðra.
Bekkurinn er merktur sérstaklega til að gefa til kynna að sá sem situr þar sé opinn fyrir samtali. Markmiðið er að skapa vinalegt rými þar sem ókunnugir geta tengst á einfaldan og óformlegan hátt. Með þessu er leitast við að ýta undir samfélagskennd og draga úr einmanaleika og félagslegri einangrun.
Öllum er velkomið að setjast á spjallbekkinn – hvort sem er til að hvílast, njóta umhverfisins eða eiga góða stund í samræðum við aðra.
Sjá frétt á vef Skagastrandar
Við óskum samfélaginu á Skagaströnd til hamingju með Spjallbekkinn.